Við Arnar horfðum á DIG! áðan, áreiðanlega í 10.skipti. Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta heimildarmynd sem fylgdi þróun og (ó)vináttu hljómsveitanna The Brian Jonestown Massacre og The Dandy Warhols frá árunum 1996 til 2003. Heimildarmyndin hefur m.a. unnið verðlaun á Sundance Film festival og London Film festival
The Brian Jonestown Massacre
The Dandy Warhols
Í byrjun myndarinnar eru meðlimir beggja hljómsveitanna miklir vinir og ætluðu sér að setja á fót neo-psycadelic revolution í tónlistarheiminum. The Dandy Warhols lenda samningi við Capital records en Anton Newcombe, forsprakkari The B.J.M sem var mjög á móti stórum útgefendum, eyddi meiri tíma í drykkju, dóp og eyðileggja öll möguleg tækifæri sem hljómsveitinni bauðst. Með tímanum verður mikil spenna milli hljómsveitanna (og milli meðlima B.J.M.) sem verður til þess að það slitnar uppúr vináttunni. Einn af fyrstu hitterum The Dandy Warhols, Not if you were the last junkie on earth, var alveg án efa saminn um Aron Newcomb og heróín fíkn hans. Aron svaraði The Dandy Warhols með því að semja lagið Not if you were the last Dandy on earth.
Þótt að The Dandy Warhols náðu aldrei þeirri alheimsfrægð sem þau óskuðu sér þá náðu þau samt ágætis vinsældum í Evrópu. Frægðarsól þeirra reis hæst þegar Vodafone notaði Bohemian Like you í auglýsingar sínar. Í dag hefur The Dandy Warhols gefið út sex stúdíóplötur og náð 13 singlum inná vinsældarlista, þá aðallega í Evrópu.
The B.J.M. hefur í dag gefið út 12 stúdíóplötur á 17 árum, allt sem að Aron hefur sjálfur samið, pródúserað og masterað, en ég veit ekki til þess að þeir hafa náð einhverjum singlum inn á vinsældarlista. Aron er mikill skaphundur, fullkomnunarsinnir og egómaniak. Hann nýtti oft tækifæri til að úthúa hljómsveitameðlimi sína á sviði ef þeir dirfðust að fara út af laginu. Þar af leiðandi stöldruðu flestir hljómsveitameðlimirnir aðeins stutt við. Fyrrum og núverandi meðlimir B.J.M eru hátt upp í 35 talsins, þar með eru taldir Peter Hays sem stofnaði Black Rebel Motorcykle Club og Bobby Hecksher sem stofnaði The Warlocks. Fyrir neðan er myndbrot úr heimildarmyndinni sem gefur ágætis mynd á hvernig venjulegir tónleikar voru hjá The B.J.M.
Ég hef komist tvisvar sinnum á tónleika með The B.J.M. Í fyrra skiptið var það hérna heima á Íslandi, Nasa, árið 2006 og í seinna skiptið á Hróaskeldu 2007. Aron fílar greinilega Ísland í tætlur því hann hefur verið hérna á Íslandi meira og minna síðan árið 2006 og í eina skipti sem að hann talar vel um einhvað í viðtölum þá er það vanalega um Ísland.
Anton Newcomb fyrir stuttu
Í ár kom út nýjasta stúdíóplata Antons og The B.J.M, Who killed Sgt. Pepper, sem var tekin upp hérna á Íslandi og í Berlín. Ég hef reyndar ekkert tjekkað á henni nema lagið Heavy knife/Þungur Hnífur sem að vinur minn Baldvin Freyr (Baddi) spilaði inná. Ef þið hafið mikinn áhuga að kynnast B.J.M þá mæli ég með að ná í Teppid Peppermint Wonderland. Það er hægt að kaupa hana í plötubúðum en annars dreifir Anton öllum plötunum sínum alveg fríkeypis á heimasíðunni http://www.thebrianjonestownmassacre.com/
-berglind
Flott blogg, gaman að sjá fólk blogga um aðra tónlist en það sem er spilað er á FM957.
ReplyDeleteÉg vil bara fá að taka það fram að þó að það sé mikill sannleikur í þessari bíómynd þá er líka fullt af bulli í henni líka. Konan sem gerir myndina elti hljómsveitirnar um í SJÖ ár til að ná þessu efni, hún var með í dópinu, sukkinu og ruglinu og var í rauninni bara grúppía. Þá sýnir hún aðeins efni frá BJM til svona 2001, en Dandy Warhols til allavegana 2003. Svo fínt að benda á að Anton hafði ekkert með gerð myndarinnar að segja og fékk ekki að sjá hana áður en hún var gefin út á meðan Courtney Taylor Taylor (já hann heitir Taylor tvisvar :P) narrate-ar myndina!
Í lok myndarinnar lítur út eins og the Dandies séu búin að "meika það" á meðan BJM eru bara dópistar með hor, voru efnilegir en séu nú bara í ræsinu. Ég hef lítið kynnt mér starfsemi Dandies síðustu ár en ég hef lítið heyrt um þau síðan Bohemian Like You var notað svo ógleymanlega í Vodafone auglýsingunum. Anton er hinsvegar hættur að drekka, er búinn að gifta sig og býr í Berlín þar sem hann sendir út sjáfstæða "pirate" útvarpsstöð. Til gamans má geta að Jón Sæmundur/Nonni Dead hjálpar honum mikið með stöðina, en þeir Anton eru góðir vinir og Jón hefur sungið inn á plötur BJM. Matt Hollywood er aftur kominn í bandið og er hljómsveitin nýbúin að túra um allan heim en hún hefur einnig spilað á stórum hátíðum á við Glastonbury og Hróaskeldu.
Þetta varð nú mikið lengra en ég ætlaði mér, mér finnst bara svo mikilvægt að fólk viti hina hliðina á sögunni.
Dig! er snilldar mynd með mikið skemmtanagildi, svo lengi sem þú horfir á hana með krítísku auga!
Takk fyrir mig!